Hjá Eldvörn færð þú reyk- hita- og gasskynjara af öllum helstu gerðum. Optíska, jóníska, þráðlausa og samtengjanlega, 12v og 220v. Reykskynjarar ættu að vera á hverju heimili og þar sem fók dvelur. Gassskynjari ætti að vera í hverjum húsbíl, sumarhúsi, hjólhýsi og fellihýsi þar sem gas er notað. Reykskynjarar eru annað hvort optískir eða jónískir. Í örsttu máli er helsti munur á þeim sá að optískir skynja betur kaldan og sýnilegan reyk (agnir í loftinu) t.d. frá rafmagnstæki eða glóðareld, en jónískir nema betur heitan reyk t.d. þar sem eldur er sjáanlegur.
Reykskynjar fást samtengjanlegir með þráðlausu sambandi. Þannig fara þeir sem samtengdir eru allir af stað í einu. Nauðsynlegt getur verið að vera með samtengjanlega skynjara í húsum sem eru á meiri en einni hæð eða þar sem hætta er á að ekki heyrist vel í skynjara þó hann sendi boð um reyk.(t.d. þegar reykskynjari í barnaherbergi fer í gang fer í gang reykskynjari í hjónaherbergi einnig í gang).
Athugið að það er ekki nóg að vera með reykskynjara, hann verður að vera á réttum stað og rafhlaðan í lagi. Rafhlaða er ekki það sama og rafhlaða, mikill gæða og aflsmunur getur verið á milli rafhlöðutegunda, því er mikilvægt að vanda valið.
|